Jæja gott fólk eftir mikið suð þá ákvað ég að gefa blogginu líf! jebb suðið virkar á mig. Fyrsta bloggið er sérstaklega fyrir hana Möddu frænku mína, hún suðaði hvað mest ;) hahaha nei nei en það er mikið búið að spyrja mig hvort ég ætli nú ekki að fara að blogga!!
Núna eins og er er ég stödd í egyptalandi, veit ekki alveg hvað ég var að pæla, ju ég vildi prufa eitthvað nýtt, upplifa eitthvað allt annað en ég er vön. Hvert sem þú ferð í evrópu er menningin oft mjög svipuð. En mér líkar við svipað, komst að því þegar ég kom hingað í þennan menningarheim. Allt önnur veröld hérna niður frá. Hér ríkir muslima trú og ég hef ekkert á móti múslima trú en að sjá hvernig það er með eigin augum lætur mig allavegana ekki langa að skipta um trú. T.d. hér eru þetta mest allt menn sem vinna hérna ég vinn með eini egypskri konu og ég var að spjalla við ein sem ég vinn með og konan hans vill vinna sem kennari en hann leyfir henni það ekki og ég sagði við hann hey hún vinnur og beinti á konuna sem vinnur með okkur þá sagði hann já hún vinnur því hún er ógift og orðin of gömul það vill hana engin lengur. Ég fékk vægt sjokk hún er jafn gömul og ég!! ég veit að ég er orðin gömul og þyrfti nú að fara að finna mér mann áður en hrukkurnar fara að aukast en Ó my god mér fannst þetta nú svolítið hart og þessi stelpa er mjög sæt og fit og bara ekkert að greyinu finnst mér en nei hún er komin yfir dagsetningu og er því skemmd vara.
En yfir í annað, hér er allt mjög fallegt, heitt og notalegt en ekkert hægt að gera :/ útsýnið er bara sandfjöll eftir sandföll og að sja sólsetrið hér er bara þvílikt flott og að synda í rauða hafinu er alveg geggjað, gullfiskarnir bara alveg upp við mann, þvílik upplifun. Ég er byrjuð á köfunarnámskeiði en er enþá bara í bóklegu núna fer svo að kafa fyrir alvöru í næstu viku. Fer í tíma á morgnana áður en ég fer að vinna. Eftir þetta fæ ég köfunarleyfi sem leyfir mér að kafa allstaðar í heiminum. Ég er orðin svaka spennt fyrir því að fara að kafa en líka pínku stressuð svo mikið í kennsluna talað um óhöpp og hvað þau geti verið svakaleg þegar það gerist í köfun uff uff en hey samt meira spennt en stressuð ;)
Ég er ein í herbergi sem átti að breytast í dag ég átti að skipta yfir í 2 manna herbergi með annari stelpu, mín bara harðneitaði og sagðist vera búin að koma sér fyrir og ætlaði sko ekki að hreyfa mig. Gaf svo yfirmaninum mínum sorgar augun að ég væri nú ekki hamingjusöm með þetta og auðvitað fékk mín það sem hún vildi ;)
herbergið er bara alveg ágætt, svalir sem sólin skín alltaf á, svaka nice. 3 sjónvarpstöðvar sem er enskt tal, svo er bara arab stöðvar fullt af þeim og jú en mjög skemmtileg indversk stöð me bollywood myndum hvað þær geta verið skemmtilega hallærislegar, aldrei séð svona marga menn vera alltaf sí dansandi. Ein stöð er bara kóraninnn lesin upp eða ekki beint lesin svona hálf sungin með svona vælu rödd hún er miklu uppáhaldi hjá egypska liðinu, alltaf í gangi í litlu matvöru búðina okkar. Svo heyrist mig minnir 6 sinnum á dag um allan bæinn bæn úr kóraninum þegar þeir eiga að fara að biðja.
Ég er mjög passa söm í hverju ég klæði mig það má ekki sjást í axlir eða hné en það virðist ekki skipta neinu máli það er alveg starað á man eins og maður sé eitthver geimvera skil þetta ekki alveg miða við hvað það er mikið af túristum hér að þeir skulu stara svona á mann og meira en það eins og þeir hafi aldrei séð kvennmann áður.
Hotelið er reyndar svaka nice og ég get farið á ströndina þar og i sundlaugina og verið eins og ég vil, bara þykist vera gestur enda lít ekki út eins og annað fólk sem vinnur hérna. Ég vinn með fólki frá egyptalandi og 3 frá rússlandi og engin þeira talar góða ensku þannig að það er litið um vitbornar samræður hér. Ég verð að segja að ég er pínulítið einmanna hér, en bara 2 mánuðir eftir. Spaið er mjög flott en vinnuskipulagið ekki alveg nóg og skipulagt fyrir minn smekk.
En ég held að þetta sé nóg í bili, allavegana búin að blogga og reyni að blogga meira núna því ég er nú byrjuð, læt svo fylgja hér nokkra myndir af spainu og fólkinu sem ég vinn með.
uúú ég er að gleyma maður það besta við allt hér að þú átt að setja klósettpappírinn ofan í ruslatunnuna en ekki í klósetið nei nei nei ekki heima hjá mér, klósetið í vinnunni lyktar ekkert smá illa útaf þessu, pissufýla dauðans enda fer ég ekki á það klóset. Þetta er víst útaf því að lagnirnar eru svo grannar hér sem ég skil ekki alveg því þetta er ný staður, en allavegana þetta vilja þeir að ég geri og já það er svona litil vatnsbuna sem þú getur stillt kraftin á sem er ofan í klósetinu sem þú átt semsagt að skola þig með en ekki nota pappír. hhhhmmm spennó
kveð í bili
eyðimerkur drottningin
p.s sorry engar myndir í þetta sin það tók alltof langan tíma :(
Tuesday, January 18, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)