við á leiðinni til baka i vinnu eftir hádegismat híhí fundum okkur alltaf eitthvað að gera Mindy( fra suður afriku) og Cassi (fra usa) en hérna sjáið þið búningana okkar
svona voru jólin hjá mér! við spaið semsagt héldum okkar eigið jólaparty sem var haldið í hvíldarherberginu í spainu þar sáttum við bara á sloppunum og borðuðum góðan mat eða eins góðan og hægt var að fá og opnuðum pakkana okkar! hver og ein dró eitt nafn og átti að gefa þeim litla gjafir fram að jólum og svo eina stóra gjöf i endan semsagt svona secret santa!
Ég og Jannie herbergisfélagin minn frá Danmerku. Þarna erum við á leiðinni heim á skipið eftir að vera búin að vera að synda með höfrungunum sem var ekkert smá mögnuð reynsla.ja maður kemur bara heim og það er ekkert smá búið að gerast!
Okei það sem eg viss var að Iris vinkona búin að eignast strák og Helena búin að eignast stelpu! Kristin Erla ólétt! Kristin H og Hjördís fluttar af heiman! og Ragnheiður flutt til landsins! þetta allt er bara fínt mál, núna er ég sú eina sem bý hjá mömmu hihi frekar fyndið en það er svo sem fint að vera hjá hótel mömmu!
en svo frétti ég það að tveir mínir fyrrverandi eru trúlofaðir, það er sko ekkert verið að taka lífinu með ró hihi
en svo eru sorgar fréttir! ég semsagt frétti það á skipinu að Afi minn væri mikið veikur! ég sagði við ömmu að gjöra svo vel að segja honum að vera á lífi þangað til ég kem heim og hann virtis nú þrauka það er búin að vera á spítala í 5 mánuði! ekki beint gott líf! en allavegana ég fór og heimsótti hann síðast liðinn miðvikudag og gat talað við hann og hann alveg með meðvitund og allt! svo eftir það,þá bara dettur hann alveg út! amma sagði að ég var bara mjög heppin að ná að tala við hann því ég var með þeim síðustu sem gerði það. svo dó hann núna síðasta laugardag! það er bara eins og hann hefur bara verið að bíða eftir mér. greyið ég veit að hann er betur setur enda ekkert lif að liggja bara a spítala en honum verður sárt saknað, og maður er eitthvað svo sjálfselskur að maður vill aldrei sleppa hendinni og leyfa þeim að fara. en eg vorkenni henni ömmu mest!
en það eina góða við þetta allt saman er að pabbi og stelpurnar koma heim í nokkra daga á fimmtudaginn!
en ég læt nú fylgja með nokkra myndir af skipinu hihi! verð svo bara að segja ferða söguna seina! annars fór ég út að borða með Evu og vorum svo boðnar í þjóðleikhúsparty sem var þvílíkt gaman! þvílíkar móttökur sem ég fékk! alveg geggjað og gaman að hitta allar stelpurnar! svo hélt ég jólin á laugardagskvöldið sem var svaka fínt! mmmm ekkert smá góður matur, sniglar í forrétt, hreindýr í aðalrétt, gat ekki verið betra!
farið nú vel með ykkur og klæðið ykkur vel, það er ÓGEÐSLEGA KALT! heheh



4 comments:
gott að fá þig heim og ég samhryggist ynnilega með afa þinn, skrítnir tímar í gangi segi nú bara ekki annað...
skemmtilegt að fá smá mydnir og ég bíð svo spennt eftir ferðasögum;)
Gaman að sjá myndirnar! Og hlakka til að hitta þig á morgun :)
knús
hæhæ ég samhryggist þér alveg innilega :) en gott að fá þig heim, hlakka til að sjá þig dúlla :)
kv Bjarney
Samhryggist þér Kristín. Get ekki beðið eftir að sjá þig og heyra meira.
Knús
Jóhanna
Post a Comment