jæja þetta er 7 skipið sem eg reyni að skrifa en eg ætla ekki að gefast upp, jæja komdu nu i gegn
eg er búin að vera færð um skip nuna er eg a disney skipi! jebb það er eins og að vinna i disney world, frekar súrt lif! þú ert á leiðinni í hádegishlé og þú hittir öskubusku og spjallar um djammið i gær hihi uss uss her er alveg bannað að tala svona öskubuska djammar ekki hehe!
en þetta er víst alveg frábært tækifæri að vinna á disney það er það sem allir vilja en fáir fá! en eg bara skil það ekki því mér líkaði betur við hitt skipið! en það var stelpa sem er búin að vinna lengur hjá fyrirtækinu sem vildi mina stöðu á hinu skipinu þannig að eg var send hingað! ekkert smá erfit að skilja við alla! en þetta er mikil breyting herna, grenjaði fyrstu vikurnar var sko ekki anægð og svo var hrikkalegur yfirmaður herna algjör tík! en hérna vinnum við fra 8-10 og fáum bara hálfan dag frí á viku en á hinu skipinu 8-8 og 2 tima hádegishlé og 1 og hálfan dag frí á viku! herna er þetta algjör þræla vinna! en þetta er miklu stærra skip og miklu stærra spa! á oceania var 400 crew og 600 gestir en a disney er það 1000 crew og 2600 gestir jebb ekkert sma, bío og leikhús og allt að skipinu! og það vinna 24 herna i spainu en 9 á hinu! mikil breyting!
en eg búin að kynnast ekkert smá frábæru fólki hérna og það er það sem heldur mér gangandi og svo er alltaf eitthvað að gerast a þessu skipi hihi! það sem er mest spæld yfir er að hitt skipið var að ferðast um alla evrópu og svo suður ameriku en disny bara bahamas jebb min sitt föst i bahamas :(
en annars er þetta búið vera þvílik reynsla rosaleg mikil vinna en meiri peningar mikið stress en mjög gaman! búin að læra að sleppa því að sofa hihi! og matur er algjört ógeð hérna! en hef nuna 2 mánuði eftir, úff er orðin mjög þreytt á þessari svaka keyrslu!
en eg trúi því ekki að eg sé búin að vera svona lengi i burtu timin liður ekkert sma hratt! o my eg a afmæli á föstudaginn og jólin eru að koma! er bara ekki að ná því!
sakna ykkar
kveðja nuna virkilega litla hafmeyjan hahaha komin á heimaslóðir (disney)
p.s frekar fyndið að vera að vinna og mina mús eða andré önd koma i heimsókn um miðjan dagin ef þú hefur átt erfið dag þá kemur nu pottþétt bros a vör eftir það! ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Hæ frábært að heyra að þú skulir LOKSINS blogga kæra frænka skoða það alltaf annað slagið ef þú skyldir mögulega skrifa eitthvað.Þetta er nú meira lífið sem þú lifir þarna,njóttu bara það er líka strit og puð hér á klakanum.
Allt gott af frétta af okkur öllum hér afi Magnús búin að vera veikur tölvert lengi og liggur á spítla en hafðu það sem allra bestmín kæra og til hamingju með afmælið sem er nú ekki langt undan knús og kram erla frænka og co
Oi, achei seu blog pelo google está bem interessante gostei desse post. Gostaria de falar sobre o CresceNet. O CresceNet é um provedor de internet discada que remunera seus usuários pelo tempo conectado. Exatamente isso que você leu, estão pagando para você conectar. O provedor paga 20 centavos por hora de conexão discada com ligação local para mais de 2100 cidades do Brasil. O CresceNet tem um acelerador de conexão, que deixa sua conexão até 10 vezes mais rápida. Quem utiliza banda larga pode lucrar também, basta se cadastrar no CresceNet e quando for dormir conectar por discada, é possível pagar a ADSL só com o dinheiro da discada. Nos horários de minuto único o gasto com telefone é mínimo e a remuneração do CresceNet generosa. Se você quiser linkar o Cresce.Net(www.provedorcrescenet.com) no seu blog eu ficaria agradecido, até mais e sucesso. If is possible add the CresceNet(www.provedorcrescenet.com) in your blogroll, I thank. Good bye friend.
hæ hæ
En ég heppin að kíkja og bara ný bloggfærsla:) Öfunda þig af þessu lífi, átt alltaf eftir að búa að þessari reynslu þótt þetta sé erfitt á stundum! En hlakka til að sjá þig á nýju ári.
Kveðja Harpa Rut frænka
Hæ skvísa ;) Til hamingju með afmælið :*
Ég gæti alveg trúað því að það væri ágætt að lifa Disney lífi aðeins í hófi.. hehe ;D
En hlakka rosalega til að fá þig heim snúður :* :*
Kv. Berglind Elva
Til hamingju með afmælið elsku snúllan mín vonandi er bara frábær dagur hjá þér í dag :)
Já þetta er rosa fljótt að líða, trúi því heldur ekki að þú sért búin að vera í burtu síðan í apríl!
En vonandi heyri ég svo í þér eitthvað fyrir jólin skvísan mín - bæó!
Elsku Kristín Rut tilhamingju með afmælið á föstudaginn:) vonandi áttiru góðan dag, hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim
Knús og kossar Kristín H
Hæhæ vildi bara skilja eftir mig spor :) en gaman að heyra í þér maður var farin að halda að þú værir búin að gleyma okkur hérna á klakanum :) en já til hamingju með afmælið þarna um daginn og hafðu það nú gott þarna hjá Mikka Mús :)
Sæl elsku frænka!
Ég var eiginlega hætt að kíkja á bloggið en ákvað að gefa því séns... og viti menn bara nýtt blogg:)
Bið að heilsa andrési, mikka og co.. ehehe
knús og kremja og hlakka til að sjá þig á nýju ári!!
kv. Heiðdís
hæ skvís, takk kærlega fyrir okkur :) Markús alveg skellihlær af bangsanum sem þú gafst honum :) Þú ert nú eitthvað klikk að vera senda okkur svona mikið og stóra pakka! En takk samt æðislega fyrir okkur öll og svo verðuru að kenna mér á þetta krem og baðdót þegar þú kemur heim! Ég komst því miður ekki til mömmu þinnar að sækja þetta fyrr en eftir áramót... en síðbúinn pakki er bara betri pakki :)
kv. Íris og family
Post a Comment