jæja þetta er 7 skipið sem eg reyni að skrifa en eg ætla ekki að gefast upp, jæja komdu nu i gegn
eg er búin að vera færð um skip nuna er eg a disney skipi! jebb það er eins og að vinna i disney world, frekar súrt lif! þú ert á leiðinni í hádegishlé og þú hittir öskubusku og spjallar um djammið i gær hihi uss uss her er alveg bannað að tala svona öskubuska djammar ekki hehe!
en þetta er víst alveg frábært tækifæri að vinna á disney það er það sem allir vilja en fáir fá! en eg bara skil það ekki því mér líkaði betur við hitt skipið! en það var stelpa sem er búin að vinna lengur hjá fyrirtækinu sem vildi mina stöðu á hinu skipinu þannig að eg var send hingað! ekkert smá erfit að skilja við alla! en þetta er mikil breyting herna, grenjaði fyrstu vikurnar var sko ekki anægð og svo var hrikkalegur yfirmaður herna algjör tík! en hérna vinnum við fra 8-10 og fáum bara hálfan dag frí á viku en á hinu skipinu 8-8 og 2 tima hádegishlé og 1 og hálfan dag frí á viku! herna er þetta algjör þræla vinna! en þetta er miklu stærra skip og miklu stærra spa! á oceania var 400 crew og 600 gestir en a disney er það 1000 crew og 2600 gestir jebb ekkert sma, bío og leikhús og allt að skipinu! og það vinna 24 herna i spainu en 9 á hinu! mikil breyting!
en eg búin að kynnast ekkert smá frábæru fólki hérna og það er það sem heldur mér gangandi og svo er alltaf eitthvað að gerast a þessu skipi hihi! það sem er mest spæld yfir er að hitt skipið var að ferðast um alla evrópu og svo suður ameriku en disny bara bahamas jebb min sitt föst i bahamas :(
en annars er þetta búið vera þvílik reynsla rosaleg mikil vinna en meiri peningar mikið stress en mjög gaman! búin að læra að sleppa því að sofa hihi! og matur er algjört ógeð hérna! en hef nuna 2 mánuði eftir, úff er orðin mjög þreytt á þessari svaka keyrslu!
en eg trúi því ekki að eg sé búin að vera svona lengi i burtu timin liður ekkert sma hratt! o my eg a afmæli á föstudaginn og jólin eru að koma! er bara ekki að ná því!
sakna ykkar
kveðja nuna virkilega litla hafmeyjan hahaha komin á heimaslóðir (disney)
p.s frekar fyndið að vera að vinna og mina mús eða andré önd koma i heimsókn um miðjan dagin ef þú hefur átt erfið dag þá kemur nu pottþétt bros a vör eftir það! ;)
Tuesday, December 4, 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)