Sunday, April 29, 2007

jæja núna ætla ég að segja frá herskólan!








jæja búin að vera í london í tvær vikur núna! fyrsta helgin var algjört æði! gisti hjá jóhönnu og steina og þau voru alveg perfect gestgjafar! rosalega næs! ég kíkti með svövu og kærastanum hennar fyrsta daginn og svo fór ég með vinkonu minni Silju út um allt að skoða! svaka gaman fór og sá t.d. soho, gavent garden, oxford street og fleira!
mynd af steina og jóhönnu á bank sem við fengum geðveik mojito!


svo fór ég á heimavistina í skólanum og hun er sko klukkutima í burtu frá mið london í eitthverju úthverfi! en já fyrsta vikan var sko hræðileg! rúmin eru ógeðslega óþæginleg! manneskjan fyrir ofan mig má ekki hreyfa litlu tá án þess að ég hristist öll eins gott að ég sef fast! gormarnir stingast upp í bakið á manni! ógeðslega kósý!






mynd af herberginu! mitt rúm þarna neðst auðvtað með mestu draslinu á! hih
eg vaknadi fyrsta dagin kl 5 en eg vakna alltaf kl 6!
og verd ad vera komin heim kl 11 um kvoldid en 12 um helgar! það er ogedslegur maturinn hérna er 2 búin að vera ælandi útaf þessu ógeði! svo er skólin alveg svakalega agaður eg tharf alltaf ad hafa harid i snud og full malud med varalit og allt og tarf ad setja plastur yfir tattuid!
svo turfti eg ad fara i laeknisskodun og i rontgen töku (ex-ray) tekid blod og piss og allt!
svo eru kennararnir eins og herþjalfara og eg er þrællinn i budunum, svona var orugglega nasistabudir hihi nei nei tetta er nu ekki svo slæmt en tad er roslegur agi herna og tær eru alltaf ad segja ad tad se alltaf verid ad fylgjast med okkur frekar spuki! tad var bara strax brjalud heima vinna strax! vid erum buin i skolanum kl half sex aldrei slaginu fyrr turfum bara ad þrifa tangad til! ekki gaman og ta er tad halftima straeto ferd til baka svo bara bordad og farid upp og lært og farid ad sofa :( ekki beint ljuft lif! svo erum vid alltaf ad standa upp fyrir bekkinn og tala buin ad gera tad 2 og eg ad gera kynningu a medferd a fostudaginn i 20 MIN. jebb ekkert sma, eitthvad ad reyna ad stama tessari ensku utur mer!

en nuna er ég útskrifuð úr áfangum fékk 80% bara rosalega ánægð með það og þá fékk ég helgar frí og það var rosa næs! fórum og kíktum út á lífið og svona!
en svava vinkona min sem kom með mér er farin hún fór eftir fyrstu vikuna! þetta var bara ekki fyrir hana! saknaði mikið fjölskyldunar og svona en hún verður bara að upplifa þetta í gegnum mig eins og þið hin núna!
en svo á ég frábæra herbergisfélaga ein frá suður afríku og hún er indverji og ein frá ástralíu og var í hernum í 6 ár jebb hún er einkaþjálfari og hinn er naglasérfræðingur! svo á mér eina bestu vinkonu í bekknum sem er frá írlandi! en flestar stelpurnar í bekknum eru frá suður afríku eða ástralíu!


ég og svava i flottu búningnum, með uppsett hárið og varalit og allt, þetta er upp í skóla , svo er búið að vera geðveikt veður hérna!

bekkjamynd! kennarinn þarna í bláu! alveg ótrúlega ströng






Herbergsfélagarnir mínir á djamminu! fyrst er það Tipsy hún er frá suður afriku en sefur ekki í herberginu en er samt alltaf hjá okkur! svo er það inverska Trisha frá suður afriku og svo Amanda hermaðurinn frá ástraliu! og þær eru algjört yndi hugsa svo vel um, vekja mig á morgnana, hugsa um þegar ég er veik (ælandi) gefa mér að borða ef ég gleymi því! algjörar dúllur



'E'Eg og Diedre besta vinkona min í bekknum hun frá írlandi á leiðinni út á lífið!

kveðja frá hersnyrtifræðingnum í london!






22 comments:

Anonymous said...

Gaman gaman að fá færslu :)

Extra gaman að sjá myndir!

Áfram með fjörið

Jóhanna said...

Hæ var bara gaman að lesa þetta aftur þó að þú ert búin að segja mér frá þessu - hlakka til að geta haldið áfram að fylgjast með þér þegar þú ert komin á skipið :)

kv. Jóhanna

Anonymous said...

Hæhæ ætlað bara að láta vita af mér og til hamingju með 80% :) good work girl :)

Anonymous said...

gaman að sjá myndir vertu áfram dugleg love mamma

Anonymous said...

flott blogg :)

Vonandi kemur annað aðeins fljótara en þetta!!! Og líka myndir - frábært :)

kv írisin þín!

Anonymous said...

Hæhæ skvísa:)
Flott blogg hjá þér, vertu dugleg að blogga og setja myndir inn:)
Knús og kossar
Kristín H

Anonymous said...

Flott blogg elskan...hlakka til að fylgjast með þér og þú verður að vera dugleg að blogga!!

Íris og Ægir said...

Þú verður svo að svara commentunum :) þá er svo gaman að skrifa :)

Anonymous said...

Vóww!! þetta mydni ég aldrei meika :-O Væri sko alveg til í að sjá prímadonnuna hana Kristínu Rut í svona koju standi.. hehe ;D

En þetta hlýtur samt að vera rosa gaman, þrátt fyrir píntíngarnar! alltaf gaman að gera eitthvað nýtt ;þ

Anonymous said...

mér finnst þú allsvakalega öflug að hafa tekið þessa ákvörðun að fara í þetta ferðalag og þetta verður trúlega ein besta lífsreynsla ævi þinnar :)
ótrúlega flott hjá þér að hafa þraukað byrjunina hún er langerfiðust ;) þú stendur þig eins og hetja og ég hlakka til að heyra meira frá þér og sjá myndir :)
hafðu það gott Kristín mín
þín vinkona Inga Dröfn :)

Anonymous said...

Vá þetta er engin smá agi!! EN ég veit þú átt eftir að plumma þig vel elsku frænkan mín! kossar og knús
Heiðdís

Anonymous said...

Gaman að fá að lesa um ævintýrin þín :)

Veistu eitthvað hvar þú verður að sigla??

Anonymous said...

Hæ hæ Kristín þetta hljómar ens og hin mesta lífsreynsla, gaman að fylgjast með og gangi þér vel á skipinu. Kveðja Ragnheidur Ósk

Anonymous said...

hæ sæta mín!! ætlaru ekki að fara að blogga meira!! ég er búin að lesa þetta svo oft ehhehe;) gangi þér vel
kiss og knús
kristín erla

Jóhanna said...

Hæhæ ég hlakka svo til að heyra meira af þér :)

Vonandi gengur vel!

Vonandi fæ ég að heyra af þér meira sem fyrst :)

Ég er svo stolt af þér
kv. Jóhanna

Anonymous said...

Vá frábært gangi þér velmín kæra þín frænka Erla

Anonymous said...

HÆHÆ elsku Kristín hvað segirðu sailor á ekki að fara að koma með fleiri fregnir af þér maður hefur svo gaman af því að kíkja og fylgjast með hvað er að ske hjá þér :)
hafðu það nú gott og ég hlakka til að lesa nýjar fréttir af þér :)
kær kveðja frá Ingu Dröfn og co. ;)

Anonymous said...

Þú ert algjör hetja var að skoða síðuna með myndum og uppl. um þetta 5 stjörnu lúxus fley sem þú ert á Váááááá öfunda þig ekkert smá hlakka til að lesa um lífið um borð.Knús og kreist.
Inga frænka

Anonymous said...

Hæ hæ skvísa. Gaman að fylgjast með þessu ævintýri þínu :o)
En vá hvað þessi skóli er strangur! og manni fannst þær smámunasamar hérna í FB :) hihi En þetta er frábær lífsreynsla fyrir þig, það ættu allir að gera eitthvað svona um ævina..
Gangi þér rosa vel, kveðja úr kuldanum á Íslandi.. Steina

Rík og glæsileg? said...

Hlakka til að heyra meira frá þér !!

Jóhanna said...

Hmmm Kristín nú er ég orðin ansi óþreyjufull að heyra meira af þér... Vonandi þarf ég ekki að bíða mikið lengr og vonandi hefurðu það rosa gott:)

kv. Jóhanna

Anonymous said...

Sæl og blessuð Kristín. Ég sendi skilaboð um daginn en sé það ekki hér. Allavega vona ég að allt gangi rosavel hjá þér og eins og ég sagði síðast þá er þetta ómetanleg lífsreynsla, það get ég sagt af eigin reynslu eftir að hafa verið í fluginu í Saudi og Afríku. Líka um að gera að lifa lífinu meðan maður er ungur ! Ég er alltaf að kíkja inn á síðuna þína og bíð spennt að heyra frá þér. Bestu kveðjur Ester